13. desember 2021

Vilja vera fyrirmynd þegar kemur að orkuskiptum í sjávarútvegi

Vestfirðingar ætla sér að verða leiðandi í orkuskiptum í sjávarútvegi. Það á að gera með því að leiða saman stofnanir og fyrirtæki til að byggja upp og laða að þekkingu til að þróa og nýta græna orku í sjávartengdri starfsemi.

Blámi, Háskólasetur Vestfjarða, Menntaskólinn á Ísafirði, Orkubú Vestfjarða, Vestfjarðastofa, og Þrymur Vélsmiðja hafa skrifað undir samstarfsyfirlýsingu um að vinna að þekkingaruppbyggingu á orkuskiptum í sjávartengdri starfsemi. Samstarfið mun ekki bara draga úr losun heldur líka skila sér í fjölbreyttara og sterkara atvinnulífi, fjárfestingu í nýsköpun og aukinni samkeppnishæfni.

„Orkuskipti í sjávartengdri starfsemi liggja sérstaklega vel að vestfirsku samfélagi þar sem stunduð er fjölbreytt útgerð og öflugt fiskeldi í bland við sjávartengda ferðaþjónustu. Í fjórðungnum eru öflugar menntastofnanir og tæknifyrirtæki sem sinnt hafa sjávarútvegi í áratugi.

Heimsbyggðin er að stíga sín fyrstu skref í orkuskiptum í sjávartengdri starfsemi en Ísland gæti skipað sér meðal fremstu þjóða í þeirri þróun í krafti öflugs sjávarútvegs og aðgengi að grænni orku.

Með samstilltu átaki og samvinnu, gætu Vestfirðir orðið fyrirmynd annara sjávarútvegssamfélaga þegar kemur að orkuskiptum. Það yrði þó ekki í fyrsta sinn sem Vestfirðir leika lykilhlutverk í slíkum umbreytingum en fyrir rúmlega 100 árum settu vestfirskir útgerðarmenn, fyrstir allra á Íslandi vél í fiskibátinn Stanley“

Segir Þorsteinn Másson, framkvæmdastjóri Bláma.

Í fyrstu á að kanna möguleika á að nýta rafeldsneyti í sjávartengda starfsemi og skoða tækifæri til að taka í notkun báta sem nýta vistvæna orku að hluta eða öllu leyti. Setja á upp námskeið þar sem nemendur í tæknigreinum og fólk með tæknimenntun fá innsýn inn í nýtingu á rafeldsneyti og hvernig meðhöndla á grænorku. Mikil þróun er að eiga sér stað í flutningabílum sem nýta vetni eða rafmagn og kanna á hvort hægt sé að nýta slíka bíla í flutninga innan svæðis.

Gert er ráð fyrir að hópurinn muni stækka á næstunni en leita á  til fleiri fyrirtækja, einstaklinga og stofnana svo styrkja megi  samstarfið og auka slagkraft verkefnisins

Fréttir

Fleiri fréttir
27. júní 2024
Blámi leitar að liðsauka
Lesa meira
9. apríl 2024
Staða hleðsluinnviða á Vestfjörðum
Lesa meira
18. janúar 2024
Veglegur styrkur til Menntaskólans á Ísafirði
Lesa meira
2. janúar 2024
Hvernig drögum við úr olíunotkun til húshitunar?
Lesa meira