21. ágúst 2025

Orkukort Vestfjarða

Blámi hefur gefið út Vestfirska Orkukortið, sem sýnir á myndrænan og aðgengilegan hátt allar helstu virkjanir og virkjanakosti á Vestfjörðum, stöðu hvers verkefnis og helstu raforkuinnviði.

Á kortinu má sjá staðsetningu og stærð virkjanakosta, áhrif þeirra á raforkuöryggi svæðisins, ásamt upplýsingum um raforkunotkun í stærstu þéttbýlisstöðunum, jarðhita og staðsetningu varaaflsvéla.

Orkumál á Vestfjörðum hafa verið mikið til umræðu á síðustu árum og mörg spennandi og mikilvæg verkefni í bígerð eða í skoðun. Orkukortinu er ætlað að dýpka umræðuna og gera fólki kleift að fræðast um einstaka virkjanir, innviði og fyrirhugaðar framkvæmdir.

Fréttir

Fleiri fréttir
28. maí 2026
Orkuþing Vestfjarða 2026
Lesa meira
22. maí 2026
Jón Páll nýr framkvæmdastjóri Bláma
Lesa meira
21. ágúst 2025
Orkukort Vestfjarða
Lesa meira
14. maí 2025
Styrkir til kaupa á vöru- og hópferðabílum
Lesa meira