Menntaskólinn á Ísafirði hlaut veglegan styrk frá Mennta- og barnamálaráðuneytið til að auka skilning kennara og nemenda á orkuframleiðslu og hvernig hægt er að nýta mismunandi orkugjafa til að draga úr losun, umhverfisáhrifum og kostnaði.
Settar verða upp sólarsellur við verkmenntahús skólans sem nota á til kennslu, þjálfunar og til að sinna hluta af orkunotkun skólans. Nemendur í húsasmíða-, málm- og vélstjórnargreinum munu smíða grind undir sólarsellurnar og nemendur í rafiðn- og vélstjórnargreinum munu koma þeim fyrir og tengja.
Verkefnið er unnið með sérfræðingum Bláma og Orkubús Vestfjarða sem munu vinna náið með nemendum og kennurum skólans. Þannig verður hægt að skapa vettvang til að samþætta námsgreinar og tengja saman nemendur úr ólíkum námsgreinum.
Blámi er stoltur samstarfsaðili og hlakkar til að vinna áfram með framsýnum stjórnendum og nemendum Menntaskólans á Ísafirði