Við hjá Bláma erum bæði stolt og þakklát fyrir að hafa fengið hvatningarverðlaun SFS sem veitt voru á ársfundi samtakana þann 24 mars.
Við hjá Bláma höfum unnið að spennandi verkefnum tengdum sjókvíaeldi, til dæmis landtengingum og rafhlöðukerfum. Það styttist í að að við förum að sjá fiskeldisbáta með stórum rafhlöðum og öflugar landtengingar fyrir brunnbáta. Hvað hefðbundin sjávarútveg varðar þá er hægt að keyra skipavélar sem brenna metanóli og verið að vinna að einu slíku verkefni á Íslandi og á næsta ári verður hægt að fá vélar sem keyra á ammoníaki.
Að fá þessi verðlaun hefur mikla þýðingu og sýnir að við erum á réttri leið. Við munum halda áfram að vinna að raunverulegum verkefnum.
Það er ánægjulegt að sjá og finna að sjávarútvegsfyrirtækin eru opin fyrir að skoða tækifæri á sviði vistvænna orkugjafa. Við meigum ekki gleyma að þessi fyrirtæki hafa verið framarlega í að minnka orkunotkun, hvort sem það er með stærri skrúfum, sparneytnari vélum eða léttari hlerum.