Jón Páll Hreinsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Bláma. Jón Páll tekur við starfinu af Þorsteini Mássyni sem hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra frá stofnun Bláma og leitt uppbyggingu félagsins á fyrstu árum þess.
Blámi er samstarfsverkefni Landsvirkjunar, Orkubús Vestfjarða, Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og Vestfjarðastofu. Markmið Bláma er að ýta undir og styðja við orkuskipti í samgöngum og sjávartengdum iðnaði, auk þess sem félagið vinnur að því að efla nýsköpun á sviði orkunýtingar.
Undanfarin ár hefur Blámi byggt upp öflugan samstarfsvettvang atvinnulífs, sveitarfélaga og opinberra aðila með áherslu á nýsköpun, orkuskipti og verðmætasköpun á Vestfjörðum. Starfsemi félagsins hefur vakið athygli fyrir metnaðarfull verkefni og sterka tengingu við samfélag og atvinnulíf á svæðinu.
Jón Páll Hreinsson hefur víðtæka reynslu af stjórnun, atvinnuþróun og stefnumótun. Hann hefur meðal annars gegnt starfi bæjarstjóra Bolungarvíkur frá árinu 2016 og áður starfað við atvinnuþróun, markaðsmál og ráðgjöf á Vestfjörðum um árabil.
„Ég tek við mjög sterku búi og hlakka til að byggja áfram á þeim góða grunni sem hefur verið lagður. Blámi hefur skapað sér mikilvægt hlutverk í þróun Vestfjarða og ég sé mikil tækifæri í áframhaldandi samstarfi atvinnulífs, samfélags og opinberra aðila,“ segir Jón Páll.
„Það er mikill fengur fyrir Bláma að fá Jón Pál sem framkvæmdastjóra. Reynsla hans og drifkraftur munu nýtast vel við að styðja við þau miklu tækifæri sem felast í aukinni orkunýtingu, orkuvinnslu, sjálfbærri verðmætasköpun og orkuskiptum á Vestfjörðum. Um leið og við bjóðum Jón Pál velkominn þökkum við Þorsteini Mássyni fyrir að leiða uppbyggingu Bláma fyrstu árin, þar sem hann lagði með frumkvæði, óþrjótandi vinnu og bjartsýni grunn að þeirri starfsemi sem er í félaginu í dag. Undir hans stjórn hefur Blámi fest sig í sessi sem mikilvægur vettvangur samstarfs og þróunar á Vestfjörðum. Við óskum honum góðs gengis á nýjum vettvangi,“ segir Haraldur Hallgrímsson, formaður stjórnar.
Jón Páll tekur formlega við starfinu á næstu vikum.